Hótel Varmahlíð er þriggja stjörnu hótel sem býður upp á gistingu í 19 vel búnum herbergjum og getur hýst allt að 38 manns í senn. Heimilislegt morgunverðarhlaðborð bíður næturgesta að morgni og yfir sumarmánuðina er boðið upp á A la carte matseðil. Á Hótel Varmahlíð taka Svanhildur hótelstjóri og hennar fólk hlýlega á móti gestum, en einkunnarorð hótelsins eru góð þjónusta og gestrisni.
Lesa meira