Hestaferðir og -sýningar
Skagafjörður er einn af þekktustu áfangastöðum hestamanna á Íslandi og árlega eru haldnir margir fjölsóttir hestaviðburðir í firðinum. Þekktastur þeirra er Laufskálarétt og þangað koma um þrjú þúsund manns árlega. Landsmót hefur verið haldið á Vindheimamelum með nokkurra ára millibili, en þangað koma allt að tíu þúsund gestir.
Í nágrenni Hótels Varmahlíðar er fjöldi aðila sem bjóða upp á lengri og styttri hestaferðir með leiðsögn, fróðlegar og skemmtilegar hestasýningar og heimsóknir á hrossaræktarbú þar sem hægt er að kynnast starfseminni.
Tenglar á ferðaþjónustufyrirtæki með hestaferðir og hestasýningar eru hér að neðan:
Flugumýri, Hestasport, Varmilækur, Lýtingsstaðir, Topphestar