Spennandi náttúruupplifun
Flúðasigling um gljúfur jökulsánna í Skagafirði er mögnuð upplifun sem seint gleymist. Þar sameinast frábær skemmtun, spenna og ferðalag um stórfenglega náttúru, þar sem jarðsaga síðustu 8-9 milljón ára blasir við. Hægt er að velja um mismunandi erfiðleikastig, sem henta bæði fjölskyldufólki sem og ofurhugum.
Austari jökulsáin er talin ein besta flúðasiglingaá Evrópu (stig: +4) og hentar vel lengra komnum, en sú vestari (stig: +2) hentar öllum. Áralöng reynsla flúðasiglingafyrirtækja í Skagafirði tryggir hámarks öryggi og faglega þjónustu.
Nánari upplýsingar á hótelinu eða í Upplýsingamiðstöð ferðamála í Varmahlíð.
Bakkaflöt - Rafting.is