Þú ert hér

Virkishóll við FlugumýriSturlunga

Sturlungaöldin, eins og þrettánda öldin var kölluð, er kennd við átök vestlenskra höfðingja, af ætt Sturlunga, við höfðingja, af ætt Ásbirninga, sem öllu réðu í Skagafirði. Margir af helstu atburðum þessa tíma áttu sér stað í Skagafirði, s.s. Flugumýrarbrenna, Örlygsstaða- og Haugsnesbardagar, en þeir bardagar voru annars vegar sá fjölmennasti, hins vegar sá mannskæðasti. Hólar, Hegranesþingstaður og Víðimýri tengjast Sturlungaöldinni einnig, ásamt fjölmörgum öðrum stöðum í Skagafirði.

Á sumrin eru í boði ferðir með leiðsögn á helstu staði Sturlungu. Gott er að hafa ritið Á Sturlungaslóð í Skagafirði við hendina þegar helstu sögusvið sögunnar eru heimsótt. Nánari upplýsingar er hægt að fá í Upplýsingamiðstöðinni í Varmahlíð, sem og á vefsíðunni Sturlungaslod.is.

Sögusvið atburða á Sturlungaöld í Skagafirði spannar nær allan miðhluta héraðsins, þar sem Hótel Varmahlíð er staðsett.

Aðgerðastika

Bookmark and Share

Language

Íslenska

Language

English

Language

German