Sundlaugar og böð
Baðferðir eru bæði frískandi og slakandi afþreying á ferðalögum. Í Skagafirði eru yfir sumartímann opnar alls sjö sundlaugar, en laugarnar á Sauðárkróki , Hofsósi og í Varmahlíð eru opnar allt árið. Á öllum sundstöðunum eru notalegir heitir pottar þar sem upplagt er að slaka á eftir góðan ferðadag í Skagafirði. Aðrar sundlaugar eru á Steinsstöðum, Bakkaflöt, Hólum í Hjaltadal og Sólgörðum í Fljótum.
Náttúrulaugar í Skagafirði eru nokkrar, en þekktust þeirra trúlega Grettislaug á Reykjaströnd. Þar hafa síðustu ár verið byggðar upp hlaðnar laugar við fjöruborðið, þar sem talið er að Grettir hafi baðað sig að loknu frækilegu sundafreki úr Drangey. Sumarið 2010 verður hlaðin laug skammt frá Reykjarfossi, en í lauginni á Reykjum réðu Ásbirningar og Haukdælir ráðum sínum áður en þeir héldu í orustu við Sturlunga í Örlygsstaðabardaga.