Þú ert hér

Aðventudagskráin 2011

Við erum farnar að hlakka til aðventunnar hér á Hótel Varmahlíð og munum bjóða upp á veglega dagskrá þar sem notaleg stemning og ljúffengar krásir verða í aðalhlutverki.

Vel heppnað hrossablót að baki!

Nú er hrossablótið góða yfirstaðið og tókst það alveg með ágætum.  Næsta blót verður að ári, þann 20. október 2012 og getum við strax farið að hlakka til.

Hrossablót 2011

Hið margrómaða og árlega Hrossablót verður haldið á Hótel Varmahlíð 15. október nk.   Í fyrra komust færri að en vildu.  Pantaðu því borð núna í síma 453-8170.

Vortilboð

Vortílboð á gistingu frá 20. apríl - 31. maí.
Gistið 2 nætur og fáið seinni nóttina á 50% afslætti.  Sé gist í 3 nætur er þriðja nóttin frí. Komið og njótið vorsins í Skagafirði.

Hótel Varmahlíð að vetri

Fátt er betra en að sitja inní hlýjunni með kakóbolla í hönd, þegar úti geysa vetrarveður. Í myndasafni hér á síðunni eru nokkrar vetrarmyndir, teknar í byrjun janúar.

Jólahlaðborðin framundan

Boðið verður upp á margt gómsætt á Hótel Varmahlíð á aðventunni, þar sem jólahlaðborðin margrómuðu verða í aðalhlutverki.

Opið hús og afmælisveisla

Í ár eru 75 ár síðan greiðasala hófst í Varmahlíð og af því tilefni verður opið hús og afmælisveisla þann 6. nóvember.

Villibráð eins og hún gerist best!

Villibráðarveisla verður á Hótel Varmahlíð laugardaginn 30. október 2010 . Borðhald hefst kl 20.00. Tilboð á gistingu.


Uppselt á Hrossablótið

Hið árlega Hrossablót Söguseturs íslenska hestsins, Hótels Varmahlíðar og Friðriks V., verður haldið á Hótel Varmahlíð 16. október. Blótið hefst með fordrykk kl. 19.30

Sögudagur á Sturlungaslóð

Næstkomandi laugardag, 14. ágúst, verður haldinn sögudagur á Sturlungaslóð í Skagafirði. Dagskráin hefst kl 13 á Reynistað, flyst svo yfir á Haugsnes/Róðugrund kl 15 og að Örlygsstöðum kl 17. Um kvöldið verður stórt og mikið Ásbirningablót  í Miðgarði, og stendur sú dagskrá frá kl. 20 til 24.

Aðgerðastika

Bookmark and Share

Language

Íslenska

Language

English

Language

German