Aðventan á Hótel Varmahlíð 2011
Pizzahlaðborð 25. nóvember kl: 19.00
Við hefjum jólaundirbúninginn að vanda með okkar gómsæta pizzuhlaðborði fyrir alla fjölskylduna.
Heimagerðar og góðar pizzur, franskar og ferskt salat.
Verð: 1800 kr fyrir fullorðna og 1000 kr fyrir 6 - 12 ára
Jólahlaðborð að okkar hætti 26. nóvember og 10. desember
Ljúf jólastemning og lifandi tónlist.
Borðhald hefst kl: 19.30
Verð: 6900 kr - gerum tilboð í hópa
Jólahlaðborð 3. desember - í Miðgarði
Líkt og undanfarin ár verðum við með glæsilegt jólahlaðboð í samstarfi við Ólafshús í menningarhúsinu Miðgarði
þar sem skagfirsk menning og góður matur verða í aðalhlutverki.
Miðaverð: 7900 kr - Gerum tilboð í hópa.
Huggulegheit á sunnudagsmorgnum
Jólabrunch 4. og 11. desember kl: 11 - 14
Tilvalið fyrir fjölskylduna að hafa það notalegt og fá sér gott í gogginn.
Girnilegt og gómsætt hlaðborð þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Óvæntar uppákomur fyrir yngstu kynslóðina.
Verð: 3800 kr fyrir fullorðna og hálft verð fyrir 6 - 12 ára.
Létt Jólahlaðborð þann 18. desember
Við bjóðum upp á jólahlaðborð í léttari kantinum í tengslum við tónleika Frostrósa í Miðgarði eins og undanfarin ár.
Verð: 4300 kr
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í jólamánuðnum og munum leggja okkur fram um að skapa ljúfa aðventustemningu og bjóða upp á góðan mat eins og ávalt.
Verið velkomin.
Borðapantanir í síma 4538170 eða info@hotelvarmahlid.is