Þú ert hér

Sögudagur á Sturlungaslóð

Næstkomandi laugardag, 14. ágúst, verður haldinn sögudagur á Sturlungaslóð í Skagafirði. Dagskráin hefst kl 13 á Reynistað, flyst svo yfir á Haugsnes/Róðugrund kl 15 og að Örlygsstöðum kl 17. Um kvöldið verður stórt og mikið Ásbirningablót  í Miðgarði, og stendur sú dagskrá frá kl. 20 til 24.

Kl. 13:00. Ásbiringar á Reynistað - Sigríður Sigurðardóttir og Helga Rós Indriðadóttir

Kl. 15:00. Haugsnes / Róðugrund - Grjóther Sigurðar Hansen formlega tekinn í notkun

Kl. 17:00. Sögumaður á Örlygsstöðum

Kl. 20:00. Ásbirningablót í Miðgarði - Kræsingar að miðaldahætti, Karlakórinn Heimir, Agnar Gunnarsson, Einar Kárason, Bjarni Maronsson og Nanna Rögnvaldsdóttir. Veislustjóri Eyþór Árnason. Áætlað er að dagskráin standi til miðnættis.

Miðinn á matinn og skemmtunina kostar 5.500 kr og panta þarf fyrir kl 16 föstudaginn 13. ágúst á Hótel Varmahlíð, í síma 453 8170.

Sjá nánar á Sturlungaslod.is
<<Til baka

Aðgerðastika

Bookmark and Share

Language

Íslenska

Language

English

Language

German