Vel heppnað hrossablót að baki!
Sl. laugardagskvöld héldum við hið árlega hrossablót Söguseturs íslenska hestsins og Hótel Varmahlíðar. Uppselt var á blótið og komust færri að en vildu. Bornar voru á borð miklar kræsingar enda um sannkallaða sælkeraveislu að ræða. Meðal rétta sem gestir nutu var hrossatart með kryddjurtamajonesi og klettasalati, villikryddaðar hrossapylsur (gerðar á staðnum að sjálfsögðu)með sólberja og rauðlaukssósu og reykt folaldatunga sem bráðnaði í munni að sögn gesta.
Andlegt fóður var heldur ekki af verri endanum þar sem Helga Rós Indriðadóttir söng alþekkt hestalög við undirleik Thomasar Higgersonar og Björn Björnsson sagði sögur af hestamönnum og öðru góðu fólki. Veislustjóri var Ólafur Sigurgreirsson.
Við getum strax farið að hlakka til næsta hrossablóts sem haldið verður þann 20. október 2012.
<<Til baka