Fundir og ráðstefnur
Hótel Varmahlíð hentar vel fyrir fundahöld og smærri ráðstefnur, þar sem m.a. er í boði skjávarpi með sýningartjaldi, þráðlaust netsamband og aðgangur að tölvu, prentara og ljósritunarvél.
Í friðsælu umhverfi Hótels Varmahlíðar er auðvelt að einbeita sér að þeim verkefnum sem liggja fyrir á námskeiðum og fundum. Í næsta nágrenni hótelsins eru stuttar gönguleiðir með góðu útsýni yfir héraðið, sundlaug með góðum heitum pottum, verslun og upplýsingamiðstöð með handverkssölu heimafólks.
Aðbúnaður í veitingasal er góður og rúmar hann með góðu móti 70-80 manns. Veitingar í mat og drykk eru sniðnar að óskum og þörfum hvers hóps.
Hafið sambandi við info@hotelvarmahlid.is og leitið nánari upplýsinga og tilboða.