Þú ert hér

Ljóðabókin

Hótel Varmahlíð

Hlíðin á móti er hulin mjúkri slæðu,
að hálfu leyti gráu silki dregin.
Með gulum blettum bílar aka um veginn
og bægja frá sér hvítri dalalæðu.

Út um gluggann sýnist mér hún segja
að sólin roði efstu fjallahnjúka.
Í útvarpinu er gömlu lagi að ljúka
og ljós er slökkt á milli tveggja eyja.

Um rjóðan vanga, háls og brúnar herðar
hendur mínar knúnar innri boðum
frjálsar leika, losa hnapp og nælu.

Og næmar mjög til næturlangrar ferðar
um nakið hold í hvítum rekkjuvoðum
þær læðast hægt í leit að fullri sælu.

Hallgrímur Helgason

 



Skagafjörður

-úr minninu

Mælifellshnjúkur
stígur fram úr þokunni
með stírur í augunum

Húseyjarkvíslin
bindur silkiborða
um brún Vallhólmans

Blönduhlíðarfjöll:
fylking stórfursta
að funda í alheimsráði

Varmahlíð:
smáfríð stelpa
staðráðin í að vera

Berglind Gunnarsdóttir


 

Aðgerðastika

Bookmark and Share

Language

Íslenska

Language

English

Language

German