Þú ert hér

Saga Hótelsins - Greiðasala í 75 ár

Árið 1930 reistu hjónin Pálmi Þorsteinsson og  Guðrún Guðmundsdóttir nýbýlið Varmahlíð austan í Reykjarhólnum.  Þau seldu Varmahlíð árið 1935 Vigfúsi  Hegasyni og Helgu Helgadóttur sem hófu þar greiðasölu.
 
Árið eftir leigði Ingibjörg Jóhannsdóttir kennari húsnæðið og rak þar heimavistarskóla fyrir börn úr Lýtingsstaðahreppi í tvö ár, en var að auki með veitingasölu til ársins 1941. Bretar yfirtóku húsakost í Varmahlíð í júlí 1940 og leiddu þangað heitt vatn.

Varmahlíðarfélagið keypti eignina árið 1941 og fékk leyfi til gistihúsareksturs. Ýmsir staðarhaldarar komu við sögu næstu áratugina. Árið 1991 keypti Ásbjörg Jóhannsdóttir Hótel Varmahlíð, en hún hafði staðið fyrir hótelrekstrinum frá árinu 1973. Á tímabili var póst-og símaafgreiðsla einnig í húsinu. Eftir að Ásbjörg keypti húsið byggði  hún  við það og fór í gagngerar endurbætur á gamla hótelinu. Hún opnaði Hótel Varmahlíð í nýju og glæsilega endurbættu húsnæði í júní 1993.

Núverandi eigendur keyptu hótelið í febrúar árið 2006.
 
Fyrsta samkomuhald í Varmahlíð voru risgjöld í nýja húsinu árið 1930.  Eftir 1936 voru haldnar þar skipulagðar samkomur og dansleikir. Enn eru haldnir dansleikir í fyrsta húsinu sem reist var í Varmahlíð.

Aðgerðastika

Bookmark and Share

Language

Íslenska

Language

English

Language

German