Þú ert hér

 

 
 
Um okkur

Hótel Varmahlíð er þriggja stjörnu hótel sem býður upp á gistingu í 19 vel búnum herbergjum og getur hýst allt að 38 manns í senn. Heimilislegt morgunverðarhlaðborð bíður næturgesta að morgni og yfir sumarmánuðina er boðið upp á A la carte matseðil. Á Hótel Varmahlíð taka Svanhildur hótelstjóri og hennar fólk hlýlega á móti gestum, en einkunnarorð hótelsins eru góð þjónusta og gestrisni.

 

Í gestamóttöku, setustofu og veitingasal á Hótel Varmahlíð er þráðlaust internet og aðgangur að nettengdri tölvu.  Veitingasalurinn rúmar með góðu móti 80-90 gesti og hentar mjög vel fyrir veislur, fundi og smærri ráðstefnur.

 

Í Varmahlíð:

Hótel Varmahlíð er staðsett í hjarta Skagafjarðar, rétt ofan við þjóðveg nr. 1. Aðeins er 3,5 klst akstur frá Reykjavík og einungis tekur um klukkutíma að komast til Akureyrar. Í Varmahlíð er sundlaug, tjaldsvæði, verslun og upplýsingamiðstöð. Gaman er að ganga um skógarstígana á Reykjarhólnum, en þangað er aðeins um 5 mín gangur frá hótelinu.

 

Í nágrenninu:

Í nágrenni Varmahlíðar er mikið af skemmtilegri afþreyingu í boði, s.s. hestaferðir, flúðasiglingar, hestasýningar og gönguleiðir. Söfn og sýningar eru víða á svæðinu, s.s. í torfbænum í Glaumbæ. Á visitskagafjordur.is er hægt að sjá allt það sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða sem gerir ferðalagið skemmtilegt og eftirminnilegt fyrir alla fjölskylduna.

 

Verið velkomin á Hótel Varmahlíð - við tökum vel á móti ykkur.


Aðgerðastika

Bookmark and Share

Language

Íslenska

Language

English

Language

German