Þú ert hér

Matarkistan SkagafjörðurSkagfirska matarkistan

Hótel Varmahlíð og Matarkistan Skagafjörður bjóða til sannkallaðrar sælkeraveislu úr besta hráefni sem völ er á í matvælahéraðinu Skagafirði. Þátttakendur í verkefninu Matarkistan Skagafjörður nota fyrst og fremst skagfirskt hráefni í matargerðina. Maturinn er þá ýmist framleiddur eða unninn í Skagafirði og framreiddur að skagfirskum sið.

Matarkistan Skagafjörður er samstarfsverkefni milli Háskólans á Hólum, matvælaframleiðenda, veitingastaða og ferðaþjónustuaðila í Skagafirði.  Hótel Varmahlíð er þátttakandi í verkefninu.

Réttir sem eru úr skagfirsku hráefni eru merktir á matseðlinum á Hótel Varmahlíð og af þeim má m.a. nefna ferskan mossarellaost frá KS, léttsaltaða þorskhnakka frá FISK á Sauðárkróki, safaríkar skagfirskar hrossalundir og rabbarbaraböku úr rabbarbara frá bæjum í sveitinni.

Hótel Varmahlíð býður upp á skagfirskar matar- og sælkeraveislur fyrir hópa sé þess óskað.

Aðgerðastika

Bookmark and Share

Language

Íslenska

Language

English

Language

German