Fjölmargir viðburðir árið um kring
Viðburðir í íþrótta- lista- og menningarlífi Skagfirðinga eru fjölmargir árið um kring. Margir þeirra eiga sér langa hefð og laða að sér mikinn fjölda gesta, s.s. Laufskálarétt og Sæluvika.
Hótel Varmahlíð býður upp á sérstök tilboð í kringum marga þessa viðburði, en auk þess hafa síðustu ár verið að þróast sérstakir viðburðir á hótelinu sjálfu, s.s. Sauðburðarhelgi og Hrossaveisla.