Laufskálarétt
Laufskálarétt, ein frægasta stóðrétt landsins, er haldin síðustu helgina í september ár hvert í Hjaltadalnum. Þá fyllist Skagafjörður af fólki sem nýtur þess að taka þátt í og upplifa einstaka stemningu.
Þessa helgi er mikið líf og fjör á Hótel Varmahlíð; frábær matseðill í boði og svo dunar dansinn fram eftir nóttu, bæði föstudags- og laugardagskvöld.