Þú ert hér

Sauðburðarhelgi

Sauðburðarhelgin er fræðandi og skemmtileg upplifun fyrir alla fjölskylduna. Ef þig langar að að upplifa eitthvað alveg sérstakt með börnum eða barnabörnum, komdu þá í Skagafjörðinn og taktu þátt í sauðburði og sveitastörfum í maí.

Á Syðri-Hofdölum, stutt frá hótelinu, eru kindur, geitur, hænur, nautgripir, hross, hundar og kettir. Bærndurnir þar, þau Klara og Atli, ásamt börnum sínum; Friðriki Andra, Anýtu Ýr og Trausta Helga, taka á móti gestum sem boðið verður að fylgjast með og taka þátt í þeim stöfum sem vinna þarf á búinu. Gist verður á Hótel Varmahlíð og þar verður einnig sveitaveisla á laugardagskvöldið.

Innifalið í helgarpakkanum er:

Sveitaheimsókn í 2 daga
Gisting m/morgunverði í 2 nætur
Matur alla helgina

Verð: Frítt fyrir börn 11 ára og yngri
11.900 kr fyrir 12 – 15 ára
 25.600 kr fyrir fullorðna, 16 ára og eldri

Mikilvægt er að gestir hafi með sér stígvél og hlífðarfatnað.
Athugið að bændurnir taka eingöngu á móti þeim sem eiga bókað í gegnum hótelið.


Aðgerðastika

Bookmark and Share

Language

Íslenska

Language

English

Language

German